Flýtileiðir


Reykjanesbær fyrir



LEIKSKÓLAR Í REYKJANESBÆ

Um leikskóla í Reykjanesbæ

Leiksólinn GarðaselGarðasel
v/Hólmgarð 230 Keflavík, Reykjanesbæ
Sími 420 3160
Leikskólastjóri er Ingibjörg Guðjónsdóttir
Opnunartím: 7:30 til 17:15

Leikskólinn Garðasel tók til starfa árið 1974. Garðasel er fjögurra deilda aldursskiptur leikskóli. Í dag er leikskólinn með vinnuheitið leikskóli á heilsubraut og verður það til haustsins 2011, en þá verður hann vígður. Markmið heilsustefnunnar er að venja börn strax í barnæsku við heilbrigða lífshætti með það í huga að þeir verði hluti af lífsstíl þeirra til framtíðar. Markmið heilsuleikskóla er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik. Aðrar áherslur leikskólans eru að efla alhliða þroska barnsins í gegnum leikinn, miðað við þarfir og þroska hvers og eins. Einnig er lögð áhersla á lestrarhvetjandi umhverfi og að efla hreyfifærni barnsins sem er undirstaða alls almenns þroska og eðlilegrar jákvæðar sjálfsmyndar, ásamt lífsleikni, umburðarlyndi og víðsýni. Skipulögð hreyfistund er einu sinni í viku fyrir hvern hóp í sal og hefur verið í Garðaseli síðan 1991. Útisvæði skólans er bæði stórt og gott og eru miklir möguleikar til vettvangsferða og eða kraftgöngu um nánasta umhverfi skólans.

 

Einkunnarorð leikskólans eru:
Hreyfing, virðing, kærleikur, skapandi starf.

 


Leikskólinn GimliGimli
Hlíðarvegi 7, 260 Ytri - Njarðvík, Reykjanesbæ
sími 421 5707, símbréf 421 5907
Leikskólastjóri er Karen Valdimarsdóttir
Opnunartími: 7:45 til 16:15

Leikskólinn Gimli tók til starfa 1971. Í leikskólanum er unnið eftir Hjallastefnunni þar sem lögð er áhersla á einfalt og jákvætt starfsumhverfi sem einkennist af vináttu, kærleika, virðingu og gleði. Deildir/kjarnar eru kynjaskiptar og aldursskiptar. Nemendahópnum er kynjaskipt til að mæta ólíkum þörfum beggja kynja og til að geta leyft stelpna- og strákamenningu að njóta sín. Að auki er áhersla lögð á opinn og skapandi efnivið og lausnir barnanna sjálfra í stað hefðbundinna leikfanga, jákvæðan aga og hegðunarkennslu. Hátt hlutfall fagmenntunar meðal starfsfólks, menntandi vinnuumhverfi fyrir bæði starfsfólk og börn, virk foreldraþátttaka og elskulegt andrúmsloft eru þeir þættir í starfinu sem leikskólinn er stoltastur af. Þetta skilar þeim árangri sem leikskólinn sækist eftir; ánægðum börnum, ánægðum foreldrum og ánægðu starfsfólki. Um áramótin 2004 - 2005 gerði Reykjanesbær þjónustusamning við Karen ehf. / Karen Valdimars-dóttur vegns reksturs leikskólans Gimli.

Einkunnarorð leikskólans eru:
Kærleikur og agi haldast hönd í hönd.

 

Leikskólinn HeiðarselHeiðarsel
Heiðarbraut 27, 230 Keflavík, Reykjanesbæ
Sími 420 3130, símbréf 421 1580
Leikskólastjóri er Kolbrún Sigurðardóttir
Opnunartími: 7:45 til 16:15

Leikskólinn Heiðarsel tók til starfa 1990. Heiðarsel er þriggja deilda. Deildirnar eru aldursblandaðar. Leikskólinn stendur á fallegum stað með góðu útsýni yfir byggðina. Útivistarsvæði er mjög skemmtilegt. Góðir möguleikar eru til vettvangsferða um nánasta umhverfi. Leikskólinn er heilsuleikskóli og starfar eftir heilsustefnunni. Markmið skólans er að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á leik, hreyfingu, næringu og listsköpun í leik og starfi. Aðrir áhersluþættir skólans eru heilsubók barnsins, markviss málörvun, opinn efniviður og einfaldleiki í umhverfi. Leikskólinn leggur áherslu á að barnið fái að njóta sín sem einstaklingur á eigin forsendum í leik og starfi, læri að skapa og leita lausna án þess að binda hugann við fyrirfram ákveðnar lausnir.
Einkunnarorð skólans eru:
Hreyfing, næring, listsköpun, leikur.

 

 

Leikskólinn HjallatúnHjallatún
Vallarbraut 20, 230 Keflavík, Reykjanesbæ
Leikskólastjóri er Ólöf Sverrisdóttir.
Sími 420 3150, símbréf 421 7494
Opnunartími: 7:45 til 16:15

Leikskólinn Hjallatún tók til starfa árið 2001. Hjallatún er „opinn” leikskóli með fjórar aldursskiptar heimastofur, tvær í sitt hvorum gangi. Heimastofurnar á hvorum gangi fyrir sig vinna saman og mynda eina heild. Hjallatún er heilsdagsleikskóli. Leikurinn í allri sinni fjölbreytni er kjarninn í uppeldisstarfi leikskólans. Áhersla er lögð á að hver einstaklingur fái að njóta sín. Í leikskólanum er lögð áhersla á nærveru, jákvæðni og hlýju. Stuðst er við fjölgreindarkenningu Howards Gardners með áherslu á persónugreindir. Unnið er svæðaskipt fyrir hádegi en í litlum hópum eftir hádegi. Öflug skráning um hvert barn gerir uppeldisstarfið markvissara. Hjallatún er hlýlegur leikskóli þar sem lögð er áhersla á fáar en skýrar reglur.

Einkunnarorð skólans eru:

Samskipti, lýðræði, leikgleði.

 

Leikskólinn HoltHolt
v/Stapagötu, 260 Innri - Njarðvík, Reykjanesbæ
Sími 421 6100, símbréf 421 6104
Leikskólastjóri er Kristín Helgadóttir
Opnunartími 7:30 til 16:15

Leikskólinn Holt tók til starfa 1985. Byggt var við skólann og hann stækkaður um tvær deildir 2003. Í leikskólanum eru fjórar aldursskiptar deildir. Umhverfi leikskólans er afar skemmtilegt og býður upp á áhugaverða möguleika hvað varðar útivist og vettvangsferðir jafnt sumar sem vetur. Á Holti er löggð áhersla á tónlist og myndlist og starfað í anda „Reggio Emilia“. Grunnurinn að starfinu er virðing fyrir barninu og hugmyndum þess. Könnunaraðferðin í sinni fjölbreyttustu mynd er nýtt til þekkingarleitar. Lögð er áhersla á að nýta frjálsan leik markvisst sem uppeldistæki. Leikgleði barnanna og áhugi þeirra fyrir líðandi stundu er í fyrirrúmi.

Einkunnarorð skólans eru:

Gleði, virðing, sköpun, þekking.

 

Leikskólinn TjarnarselTjarnarsel
Tjarnargötu 19, 230 Keflavík, Reykjanesbæ
Sími 420 3100 Leikskólastjóri er Inga María Ingvarsdóttir
Opnunartími: 7:30 til 16:15

Leikskólinn Tjarnarsel er elsti leikskólinn í bæjarfélaginu, tók til starfa 1967. Leikskólinn er með fjórar aldursskiptar deildir og um sumarfrí ár hvert færast nemendur hverrar deildar yfir á næstu aldursdeild og einnig viðkomandi kennarar. Leikskólinn hefur skýra starfsmannastefnu og námskrá sem gerir vinnuferlið opnara og sýnilegra fyrir kennara leikskólans og foreldra leikskólabarna. Áhersluþættir leikskólans eru vettvangsferðir, umhverfismennt og lestrarhvetjandi umhverfi. Lögð er áhersla á leiktilboð með opinn efnivið sem gefur nemendum möguleika á að upplifa og skapa það sem hugurinn kýs. Lögð er áhersla á tillitssemi, vináttu og kærleika milli allra. Að hver einstaklingur læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, náunganum og umhverfinu.

Einkunnarorð leikskólans eru:

Hreyfing, lífsgleði, upplifun, virðing.

 

VesturbergVesturberg
Vesturbraut 15, 230 Keflavík, Reykjanesbæ
Sími 420 3115
Leikskólastjóri er Brynja Aðalbergsdóttir.
Opnunartím: 7:45 til 16:15

Leikskólinn Vesturberg tók til starfa 1997. Vesturberg er „opinn“ leikskóli þar sem allt rými nemendanna er sameiginlegt.Vesturberg er í nýju glæsilegur húsi, sem formlega var tekið í notkun 28. ágúst 2008. Í leikskólanum er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, heimastofur eru fjórar og eru aldursskiptar. Börnin fara frjálst um húsið en kennarar eiga fasta viðveru á ákveðnum svæðum viku í senn. Kennarar leggja áherslu á að vera til staðar fyrir nemendur og láta þá hafa sem mest frumkvæði að gjörðum sínum. Markmið svæðaskipulagsins er meðal annars að sjá til þess að hver nemandi njóti sín á eigin forsendum og að þeir fái næði og svigrúm í leik sínum. Að efla frumkvæði, sköpunarþörf og ímyndunarafl nemenda, auk þess að skapa svigrúm til að nemendur geti ræktað vináttu við önnur börn og kennara. Á svæðum Vesturbergs er lögð rík áhersla á málrækt með ýmsum aðferðum sem eiga við á hverju svæði.

 

Einkunnarorð leikskólans eru:
Frumkvæði, vinátta, gleði.

 

Leikskólinn AkurAkur
Tjarnarbraut 1-3, 230 Reykjanesbæ
Sími 421 8310
Opið: Kl. 7:45 - 16:15
Leikskólastjóri er Heiðrún Scheving Ingvarsdóttir
Netfang: akur@hjalli.is
Veffang: hjalli.is/akur

Leikskólinn Akur er stærsti leikskóli Reykjanesbæjar alls 1110 m2 að stærð með 6 kjörnum og 140 börnum. Gert er ráð fyrir auknu rými á hvert barn eða 7,5 m² en til samanburðar er gert ráð fyrir 7 m² á barn í núverandi leikskólum bæjarins.
Akur er Hjallastefnuskóli og rekinn samkvæmt samningi við Reykjanesbæ.

 


Leikskólinn VöllurVöllur
Ásbrú
Sími 421 8410
Leikskólastjóri: Ragnhildur Ólafsdóttur og Bettý Gunnarsdóttir
Opið: 6:45 - 17:00
Netfang: vollur@hjalli.is
Veffang: hjalli.is/vollur

Hjallastefnan ehf. og Keilir - Atlantic Center of Excellence hafa gert með sér samning um leikskólastarf á Ásbrú. 




 

Heilsuleikskólinn
Heilsuleikskólinn Háaleiti
Lindarbraut 624
Ásbrú
Sími 426 5276
Leikskólastjóri: Regína Rósa Harðardóttir
Opið: 7:30 - 16:15
Netfang:haaleiti@skolar.is
Veffang:skolar.is

 



Reykjanesbær - Tjarnargata 12 - Póstfang 230 - Sími 421 6700 - Bréfasími 421 4667 - Kennitala 4707942169 - Póstur til vefstjóra - RSS straumur - Lagalegur fyrivari