Allir grunnskólar í Reykjanesbæ eru einsetnir frá árinu 2000 í kjölfar umfangsmikilla breytinga í skólamálum sveitarfélagsins. Í skólunum er boðið upp á heitar máltíðir í hádeginu og Frístundaskóla frá því að skóla lýkur til kl. 16:00.
Nemendur sækja grunnskóla samkvæmt skólahverfum. Ekki þarf að sækja sérstaklega um grunnskólavist en óski foreldrar eftir öðru skólahverfi þarf að sækja um það á íbúavefnum mittreykjanes.is. Nemendur með lögheimili í tilteknu skólahverfi hafa þó forgang á skólavist ef skóli þarf að takmarka nemendafjölda. Tekið er á móti nýskráningum í viðkomandi skóla.
Allar upplýsingar vegna skráningu í grunnskóla eru á mentor.is og eru foreldrar hvattir til þess að nota lykilorð sín þar. Lykilorð leikskóla gilda áfram í grunnskóla. Foreldrar geta breytt upplýsingum sem þar eru skráðar um barnið sjálfir og jafnframt nálgast upplýsingar um skólastarf barnsins. Hafir þú glatað lykilorði þínu getur þú haft samband við skólaritara viðkomandi skóla.
Innritunarreglur grunnskóla (pdf)
Skólamatur Skólastefna Reykjanesbæjar
FRÍSTUNDASKÓLI Frístundaskólinn býður dagskrá fyrir börn í 1. – 4. bekk frá því að skóla lýkur og til kl. 16.00. Frístundaskólinn starfar í öllum grunnskólum Reykjanesbæjar. Hver skóli hefur til umráða miðstöð sem nefnd er Skjól en jafnframt verður skólahúsnæði nýtt sem ekki er í notkun hverju sinni.
Nánari upplýsingar um frístundaskólann er að finna á vefsíðum skólanna.
GRUNNSKÓLAR
Tenglar:

|