Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, annast málefni Fræðslusviðs. Fræðslustjóri: Eiríkur Hermannsson Staðgengill Guðbjörg Sveinsdóttir rekstarfulltrúi
Leikskólafulltrúi Leikskólafulltrúi er Guðríður Helgadóttir
Sérfræðiþjónusta Deildarstjóri er Gylfi Jón Gylfason
Aðrir starfsmenn eru:
Gyða Arnmundsdóttir sérkennslufulltrúi Dröfn Rafnsdóttir kennsluráðgjafi Hafdís Garðarsdóttir kennsluráðgjafi Ingibjörg Hilmarsdóttir sérkennslufulltrúi Kristinn Hilmarsson talmeinafræðingur Hafdís Björg Kjartansdóttir sálfræðingur Þórhildur Einarsdóttir sálfræðingur Berglind Bragadóttir sálfræðingur Sigurður Þ Þorsteinsson sálfræðingur Guðrún Oddsdóttir sálfræðingur Hlutverk Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar Fræðsluskrifstofan annast stjórnsýslu, rekstur og þjónustu vegna uppeldis- og menntamála bæjarfélagsins. Fræðslustjóri er forstöðumaður fræðsluskrifstofu. Markmið Fræðsluskrifstofu er að búa yfir sem víðtækastri sérfræðiþekkingu þannig að hún nái að veita kennslufræðilega og sálfræðilega ráðgjöf og aðstoð við umbóta- og þróunarstarf í grunnskólum og leikskólum samkvæmt skólastefnu Reykjanesbæjar.
Fræðsluskrifstofa hefur umsjón með rekstri, áætlunargerð og sérfræðiþjónustu fyrir leikskóla, grunnskóla og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Skrifstofan fer með úrvinnslu launaskýrslna fyrir grunnskóla bæjarins og veitir aðstoð á sömu sviðum við skóla í nágrenni.
Fræðsluskrifstofa annast sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla Reykjanesbæjar sem og grunnskóla í nágrannabyggðarlögunum sem eru Grunnskólinn í Sandgerði Stóru-Vogaskóli og Gerðaskóli og skipuleggur fræðslufundi og kennaranámskeið.
Grunnskólar fá sérfræðiþjónustu í samræmi við ákvæði grunnskólalaga nr. 91/2008 og reglugerð um sérfræðiþjónustu og er lögð áhersla á að sálfræðileg og kennslufræðileg þekking nýtist sem best í skólastarfi.
Leikskólar fá sérfræðiþjónustu í samræmi við lög um leikskóla nr. 90/2008. |